Þriðjudagur, 28. ágúst 2007
Miðbær í herkví
Í Morgunblaðinu í gær lýsti Fríða Björk Ingvarsdóttir ritstjórnarfulltrúi gönguferð um hverfið sitt. Þar dregur hún upp mynd af óöldinni í hverfinu, sem ber póstnúmerið 101, og hefur án vafa opnað augu margra. Lengi hefur verið ljóst að ástandið í miðbænum er komið út yfir öll mörk. Það er ekki hægt að bjóða íbúum, verslunareigendum, eigendum veitingastaða og hótelrekendum í miðbænum upp á þetta ástand helgi eftir helgi. En hvernig er hægt að vinda ofan af þessu ófremdarástandi?
Tvennt þarf að gerast. Annars vegar þarf að finna leið til að ýta undir að sá hluti skemmtanalífsins, sem mestur hávaði fylgir, flytjist út í hverfi þar sem engir eru nágrannarnir til að ónáða, líkt og gert hefur verið í borgum á borð við París og Berlín, eins og Fríða Björk lýsir í grein sinni. Hins vegar þarf að komast til skila að núverandi umgengni verður ekki liðin.
Stór hluti vandans liggur í því hvernig fólk skemmtir sér. Áfengisneyslan er oft svo hömlulaus að allir þröskuldar og innri bremsur hverfa. Hverjar eru svo afleiðingarnar fyrir gerendurna af hegðun sinni; af ribbaldahætti og skemmdarverkum? Yfirleitt eru þær engar.
Undanfarið hefur mátt fylgjast með því hvernig dregið hefur úr hraðakstri á þjóðvegum landsins. Nærtækasta skýringin á því er að sektir fyrir of hraðan akstur hafa verið hækkaðar svo um munar. Er hægt að fara svipaða leið til að hafa áhrif á ástandið í miðbænum? Mætti hugsa sér að í stað þess að horfa í hina áttina þegar fólk pissar og gengur örna sinna á almannafæri yrði það sektað? Mætti hugsa sér að fólk, sem ítrekað er staðið að því að eyðileggja annarra eigur, gjaldi háar sektir eða verði látið gegna samfélagsþjónustu eða sett í það nokkra morgna að hreinsa upp afraksturinn eftir sollinn?
Eins og sakir standa er miðbær Reykjavíkur í herkví. Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur hvatt til aðgerða í málinu. En þær verða til lítil gagns ef ekki eru höfð afskipti af fólki sem sleppir gjörsamlega fram af sér beislinu. Eins og ástandið er núna virðast yfirvöld standa ráðþrota. Brotin eru svo mörg að engin leið er að vita hvar á að byrja. Það þarf hins vegar að sýna að villimennskan verði ekki lengur liðin. Ef fólk veit að háar sektir liggja við brotum og því er fylgt eftir gæti það haft áhrif. Ef það þarf að inna af hendi samfélagsþjónustu fyrir brot opnast ef til vill augu þess.
Flokkur: Ritstjórnargreinar | Facebook

adalbjornleifsson
adalheidur
malacai
almaogfreyja
andrigeir
anno
anna90
arikuld
a2
arnljotur
audbergur
agbjarn
arnith
safinn
bailey
gammon
baldher
baldurkr
baldvinj
obama
laglegust82
birgitta
dullur
blogger
brandarar
eurovision
dansige
rassgat
dianadv
gagnrynandi
jari
liso
eirikuro
hafmeyja
erla
eyvi
ea
fararstjorinn
frelsisson
fhg
fruheimsmeistari
saltogpipar
gammurinn
gislifreyr
gisliblondal
gudni-is
gutti
mosi
zumann
gmaria
alit
zeriaph
gun
gunnarb
gthg
gbo
morgunblogg
hallgrimurxd
hallurg
polites
hallibjarna
maeglika
heidathord
hlf
helgi-sigmunds
herdis
himmalingur
sveiflan
hlynurh
kolgrimur
hlodver
hpfoss
hvitiriddarinn
ibb
jakobk
jamesblond
jonmagnusson
jonsnae
nonniblogg
jonvalurjensson
julli
kareneha
tjaldurinn
photo
kolbrunb
kristinnp
kiddirokk
lara
maggi
astroblog
marinomm
martasmarta
mortenl
nilli
olijoe
solir
pallg
pallblondal
corvo
redlion
reynir
rosaadalsteinsdottir
rynir
fullvalda
seinars
sjos
logos
heidarbaer
duddi9
sigurdurhroar
siggisig
ziggi
siggith
athena
sporttv
stebbifr
steinibriem
kosningar
svatli
sveinnt
svei
saemi7
torfusamtokin
daystar
vefritid
vestfirdir
villagunn
ippa
villidenni
villithor
villivill
viska
hector
valdinn
thorirallajoa
doddidoddi
hnefill
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning