Framsókn kingsar

Framsóknarmenn slógu keilur með Noregsför sinni. Hlutu þeir verðskuldað lof fyrir. Þeim kjarklausu kotbændum, sem nú halda um búrlykla fyrir íslenska þjóð, var þó ekki skemmt.

En nú hafa þeir framsóknarmenn tekið sér frí frá að slá keilur um stund og láta í staðinn slá út í fyrir sér. Þeir létu Alþingi Íslendinga kjósa fyrir sína hönd belgískan mann í bankaráð Seðlabankans, af því hann hefði svo sniðugar hugmyndir um hvernig mætti taka upp erlenda mynt, án þess að spyrja um leyfi.

Nú vill þannig til að bankaráðið hefur lögum samkvæmt ekkert með það að gera. Það á fyrir hönd íslenskrar þjóðar og í umboði Alþingis að fylgjast með rekstri bankans, sýsla með launa- og lífeyrismál starfsmanna og annað í þeim dúr.

Framsóknarmenn vilja láta fljúga með Gros þennan aðra hvurja viku frá Brussel til Keflavíkur til að sjá um þessi mál Íslendinga, sem þeir telja landa sína ófæra um að sinna.

Augljóst virðist að framsóknarmenn hafa ekki vitað hvar þeir gætu fengið upplýsingar um verksvið bankaráðsins. Er því rétt að benda þeim á íslenska lagasafnið. Þegar þeir hafa kíkt í það er rétt að þeir láti kjósa aftur fyrir sig.

Í sárabætur geta þeir hent piparmy(i)nt í Gros, sem hann getur tekið upp sér til uppörvunar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Óneitanlega hafði ég gaman af þessu...

Guðbjörn Guðbjörnsson, 20.10.2009 kl. 08:50

2 Smámynd: Agnar Bragi

Framsókn er eini flokkurinn í þessu landi sem er að gera eitthvað af viti, hefur farið í gegnum endurnýjun, er með progressive hugmyndir og tilbúnir að framkvæma og varðveita íslenska sjálfsvirðingu.

Ekki er þörf á að ræða krata og komma liðleskjurnar... EN íhaldið er ekki búið að moka út í sínum flokki, er ekki staðfastur á grunnatriðum og hefur einnig innanborðs liðleskjur eins og Kristján Þór og félaga.

Agnar Bragi, 20.10.2009 kl. 09:13

3 Smámynd:

Ungu alþingismennirnir í Framsókn eru þó að reyna að leita leiða...

, 20.10.2009 kl. 09:16

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

;) 

Hér voru stubbuaðir bakaradrengir

Gunnar Rögnvaldsson, 20.10.2009 kl. 09:23

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég hefði trúað því upp á Samfylkinguna að þeir settu Brusselfasista í stjórn bankans án þess að spyrja kóng né prest.  Ég átta mig ekki á framsóknarflokknum í dag.  Það er ekkert samhengi milli orða og gjörða. Sama má raunar segja um Sjálfstæðisflokkinn. Þeir eru á móti Icesave samningum og AGS samstarfi, en þegar að atkvæðagreiðslum kemur, þá kemur ávallt í ljós að það er bara sýndarandóf.

Ég er gersamlega miður mín yfir þeim svikum, sem nú eiga sér stað í garð fólksins. Það virðist vera þverpólitísk samstaða um að hunsa vilja þjóðarinnar og plotta gegn henni í öllum hornum.   Ég yrði ekki hissa á ef einhver aðþrengdur snappaði á næstu misserum og gerði eitthvað "verklegt" til að losa okkur við óværuna. Í alvöru talað.

Jón Steinar Ragnarsson, 20.10.2009 kl. 09:34

6 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Hér heldur greinilega fyrrverandi Seðlabankastjóri um penna.  Stíllinn leynir sér ekki og svekkelsið svífur yfir vötnum !

ESv 

Einar Sveinbjörnsson, 20.10.2009 kl. 10:39

7 Smámynd: Ingvar

Samfylkingin setti breska konu vinkonu Ingibjargar Sólrúnar í peningamálastefnunefnd Seðlabankanns. Samfylkinginn sett norskan flokksbróður í embætti seðlabankastjóa á Íslandi. Bíddu, bíddu er ekki búið að gefa fordæmið fyrir útlendingum í áhrifastöður innans Seðlabankans.

Það hefur alltaf verið lenska hjá Samfylkingunni að sjá flísina í augum annara en sjá ekki bjálkann í sínu eigin auga.

Ingvar

Ingvar, 20.10.2009 kl. 12:03

8 Smámynd: Halldór Sverrisson

Nefndur belgi verður þjóðinni örugglega til minni skaða heldur en afglapinn sem skipaði sjálfan sig sem formann bankastjórnar seðlabankans og heldur trúlega á penna í þessum pistli...

Halldór Sverrisson, 20.10.2009 kl. 18:28

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband