Mánudagur, 16. nóvember 2009
„Alveg skýrt og klárt“
Orð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í athyglisverðu viðtali í síðustu viku á SkjáEinum gera enn flóknara en fyrr að hafa fyrri stjórn sem skálkaskjól lengur hvað þetta varðar. Þá var hrakist í að halda því fram að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vildi ekki ljúka sínum endurskoðunum og lánveitingum í framhaldinu nema Icesave væri tryggilega hengt um háls Íslendinga. Þessu neitar framkvæmdastjóri sjóðsins í bréfi til Gunnars Sigurðssonar leikara. Það segir meira en flest annað um hvernig ríkisstjórn Íslands hefur haldið á málinu að það þurfi bréfaskipti af því tagi til að greina stöðuna á milli Íslands og AGS. Strauss-Kahn segir í bréfinu til leikarans að tengslin við Icesave megi rekja til krafna okkar norrænu bræðraþjóða.
Hinn 29. júlí sagði Jón Sigurðsson, formaður samninganefndar um Norðurlandalán, í viðtali við Ríkisútvarpið: „Engin skilyrði voru fyrir því í lánasamningum við Norðurlöndin að Alþingi samþykkti Icesave.“ Og tveimur vikum síðar segir sjálfur forsætisráðherrann, Jóhanna Sigurðardóttir, í ræðu á Alþingi: „...það er alveg skýrt og klárt að norrænu lánin eru ekki tengd við Icesave.“ Nokkrum vikum áður, hinn 2. júlí sl. þegar Steingrímur J. mælti fyrir fumvarpinu um Icesve-ábyrgðina, fjallaði hann um afleiðingar þess að hafna frumvarpinu. Um þetta atriði sagði hann: „Hvaða afleiðingar hefur það? Það strandar öllu aðgerðaplaninu sem nú er unnið eftir og snýr endurreisn íslensks efnahagslífs, það strandar því öllu. Það liggur fyrir, rækilega skjalfest, að samstarfsáætlunin við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og afgreiðsla gjaldeyrislána þaðan strandar. Það liggur rækilega skjalfest fyrir að gjaldeyrislánafyrirgreiðsla frá hinum Norðurlöndunum strandar sömuleiðis.“
Hvernig er hægt að ætlast til að Alþingi samþykki slíka klafa á Íslendinga, þegar grunvallarforsendurnar eru í skötulíki? Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, gerir glögga grein fyrir því á hve veikum grunni Icesave-málið er reist í nýjasta helgarpistli sínum. Sá pistill hefur yfirskriftina „Metnaðarleysi við gæslu þjóðarhagsmuna“. Þar er ekkert ofsagt.
Flokkur: Ritstjórnargreinar | Facebook

adalbjornleifsson
adalheidur
malacai
almaogfreyja
andrigeir
anno
anna90
arikuld
a2
arnljotur
audbergur
agbjarn
arnith
safinn
bailey
gammon
baldher
baldurkr
baldvinj
obama
laglegust82
birgitta
dullur
blogger
brandarar
eurovision
dansige
rassgat
dianadv
gagnrynandi
jari
liso
eirikuro
hafmeyja
erla
eyvi
ea
fararstjorinn
frelsisson
fhg
fruheimsmeistari
saltogpipar
gammurinn
gislifreyr
gisliblondal
gudni-is
gutti
mosi
zumann
gmaria
alit
zeriaph
gun
gunnarb
gthg
gbo
morgunblogg
hallgrimurxd
hallurg
polites
hallibjarna
maeglika
heidathord
hlf
helgi-sigmunds
herdis
himmalingur
sveiflan
hlynurh
kolgrimur
hlodver
hpfoss
hvitiriddarinn
ibb
jakobk
jamesblond
jonmagnusson
jonsnae
nonniblogg
jonvalurjensson
julli
kareneha
tjaldurinn
photo
kolbrunb
kristinnp
kiddirokk
lara
maggi
astroblog
marinomm
martasmarta
mortenl
nilli
olijoe
solir
pallg
pallblondal
corvo
redlion
reynir
rosaadalsteinsdottir
rynir
fullvalda
seinars
sjos
logos
heidarbaer
duddi9
sigurdurhroar
siggisig
ziggi
siggith
athena
sporttv
stebbifr
steinibriem
kosningar
svatli
sveinnt
svei
saemi7
torfusamtokin
daystar
vefritid
vestfirdir
villagunn
ippa
villidenni
villithor
villivill
viska
hector
valdinn
thorirallajoa
doddidoddi
hnefill
Athugasemdir
Mælið manna heilastir Moggamenn á varðgæslu ykkar fyrir íslenska þjóð.
Eltið uppi rangfærslur landsölufólksins, afhjúpið blekkingarnar og skjalfestið lygarnar.
Og drífið ykkur í að leggja ykkar stein á vogarskálar réttlætisins með því að afhjúpa lögleysu breta og Hollendinga í ICEsave kröfum þeirra.
Það stendur ennþá á alvöru fréttaskýringu um það sem má og það sem má ekki.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 16.11.2009 kl. 08:50
Já, fyrir alla muni notið mátt Morgunblaðsisn nú í kannski síðustu dögum ólöglegu Icesave-nauðungarinnar gegn almenningi þessa lands. Og vonandi líka síðustu lífdögum hinna aumu og skaðlegu ríkisstjórnarflokka. Og tek undir með Ómari.
ElleE, 16.11.2009 kl. 12:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning