„Dansinn í Hruna“ í nýrri uppfærslu

Bókum um „hrunið“ fjölgar dag frá degi. Þær er mjög misgóðar en fara þó batnandi.

Íslendingar eru ekki einir um slíkan áhuga. Bretar fara ekki varhluta af honum, enda gekk mikið á í Bretlandi og hvergi eru fleiri flinkir skrifarar um efnahags- og fjármál en þar. En þeir fara líka enn frumlegri leiðir en við. Þeir gefa ekki bara út bækur um atburðina. Þeir setja upp leikrit.

Nú er verið að sýna í breska þjóðleikhúsinu nýtt leikrit: The Power of Yes eftir David Hare. Það virðist hafa fengið góðar viðtökur.

Í kynningu á leikritinu segir í lauslegri þýðingu: „Hinn 15. september 2008 hrundi kapítalisminn með braki og brestum, þegar undirmálslán og eitruð skuldabréf fylltu fyrirsagnarýmin. Í vor pantaði Þjóðleikhúsið sér áhrifamikla frásögn af því hvernig, samhliða falli bankanna þegar kapítalismanum var vikið til hliðar, sósíalisminn ákvað að taka á sig skuldir hinna ríku og eingöngu þeirra skuldir.“

Staksteinar hafa haft það sem meginreglu um áratuga skeið að skipta sér ekki af leikritavali leikhúsanna. Og í sannleika sagt stendur ekki til að breyta frá markaðri stefnu að þessu leyti. En þeir geta ekki neitað sér um að gefa hér netta ábendingu til íslensku leikhúsanna, því að þessi kynning á hinu nýja leikriti hljómar óþægilega kunnuglega í eyrum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

He he, já sem sagt tíminn þegar sósíalistar urðu að kapítalistum...

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.11.2009 kl. 00:47

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband